Fyrirspurnir v. fjáfestinga

Netfang

fjarfestingar@laxey.is

Atvinnuumsókn

Netfang

job@laxey.is

Almennar fyrirspurnir

Netfang

info@laxey.is

Sigurður Smári Benónýsson hefur hafið störf hjá Laxey. Sigurður er með sveins- og meistarabréf í húsasmíði og lauk námi í byggingafræði frá Vitus Bering skólanum í Horsens, Danmörku. Frá árinu 2007 hefur hann einnig verið löggildur mannvirkjahönnuður.

Sigurður hefur áralanga reynslu á sviði skipulags- og byggingarmála. Hann starfaði sem skipulags- og byggingarmálafulltrúi í Vestmannaeyjum frá 2002 til 2020 og tók síðan við sem byggingarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar, þar sem hann starfaði til ársins 2025. Þekking hans og víðtæk reynsla nýtist vel í verkefnum Laxey.

Við erum ánægð með að fá Sigurð Smára til liðs við okkur og njótum samstarfsins. Hann hefur þegar hafið störf og við bjóðum hann hjartanlega velkominn í teymið.