Fyrirtækið hyggst skapa öflugan vinnustað þar sem mikið verður lagt í að efla mannauð og liðsanda í félaginu.
Fiskeldið og áhrif þess á atvinnulífið í Eyjum
Stofnun fiskeldisins mun hafa veruleg áhrif á atvinnulífið í Eyjum. Sé miðað við að 32.000 tonn af laxi verði framleidd á ári má reikna með að:
- Félagið verði meðal allra stærstu fyrirtækja í Vestmannaeyjum.
- Fyrirtækið geti með beinum hætti skapað yfir 100 störf, auk fjölda óbeinna starfa.
- Mikil aukin umsvif verða í flutningum um höfnina í Vestmannaeyjum.
- The Framkvæmdartímabil stöðvarinnar muni vara að minnsta kosti 6-7 ár og fjölmörg iðnfyrirtæki munu kom að uppbyggingunni.
Það eru mikil tækifæri til vaxtar enda mikil eftirspurn eftir hágæðamatvöru sem er framleidd með ábyrgum hætti.
Fyrirtækið hyggst skapa öflugan vinnustað þar sem mikið verður lagt í að efla mannauð og liðsanda í félaginu.
Starfsmenn verða hvattir til að sækja sér menntun í fiskeldi enda gæði starfseminnar drifin áfram af fólkinu sem mun annast fiskinn og sjá honum fyrir góðum vaxtarskilyrðum.
Með því að sameina frábær skilyrði í náttúrunni, samfélaginu og krafti fólksins í félaginu hyggjast stofnendur fyrirtækisins LAXEY byggja upp nýja stoð í atvinnulífi Vestmannaeyja inn í framtíðina.
Að vinna og búa í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjar er spennandi staður fyrir unga sem aldna til að búa á með fjölskyldu. Með tæplega 5000 íbúa eru allir innviðir til staðar svo sem leik-, grunn- og framhaldsskóli með fjölbreyttar námsbrautir.
Öflugt íþróttastarf er á eynni þar sem lið kvenna og karla spila í efstu deildum bæði í handbolta og fótbolta ásamt því að einn besti golfvöllur Íslands liggur á strönd Atlantshafsins. Mikill og vaxandi ferðamannastraumur til Vestmannaeyja byggir enn frekar upp innviði sem tengjast dægrastyttingu, veitingahúsum og útivist.
Landslag er stórkostlegt með óendanlegum möguleikum til göngu og hlaupa enda er eitt fjölmennasta víðavangshlaup Íslands haldið í Vestmanneyjum.
Vestmannaeyjar draga til sín fjölmarga gesti yfir sumarið. Mörg stór íþróttamót eru haldin með þátttöku þúsunda barna og foreldra þeirra. Í byrjun ágúst er haldið stærsta útihátíð á Íslandi í Vestmannaeyjum með þátttöku heimamanna og gesta.