Laxey hefur ráðið Sigurð Arnar Magnússon í starf verkefnastjóra á framkvæmdasviði. Sigurður Arnar, sem er uppalinn í Vestmannaeyjum, lauk nýverið MS-gráðu í iðnaðar- og kerfisverkfræði frá The Ohio State University með áherslu á aðfangakeðjustjórnun og framleiðslukerfi.
Hann hefur reynslu af verkefnastjórnun, ferlagreiningu og hefur unnið að þróun stafrænna lausna. Með góða skipulagshæfni og færni í teymisvinnu mun Sigurður Arnar gegna mikilvægu hlutverki í uppbyggingu Laxey. Hann hefur einnig í gegnum íþróttir og störf sín öðlast dýrmæta reynslu af forystu og samvinnu.
Sigurður Arnar hefur störf hjá Laxey á komandi viku og við óskum honum velfarnaðar í nýju starfi!